Gefðu ljúffenga gjöf sem gleður.

Vínkassar frá Schola Sarmenti eru fullkomin jóla- eða tækifærisgjöf, hvort sem er fyrir einstaklinga, fyrirtæki eða hópa.

Við sjáum um að útvega glæsilega pakka við hvers hæfi og við sérhvert tilefni. Hafðu samband og við svörum um hæl.

Úrval af rauðu

14.990 kr.

Þrjár úrvals vínflöskur í veglegum viðarkassa.

  • Margverðlaunað meistaraverk Schola Sarmenti. Dökkrúbínrautt, kröftugt og bragðmikið vín, þroskaðir ávextir með keim af súkkulaði og kaffi, ásamt flauelsmjúkri áferð. Tannín eru mild og þægileg, en gera það að verkum að eftirbragð varir lengi.

    Þetta vín er frábært eitt og sér, en unir sér einkar vel með hvers konar kjötmeti. Vín sem hægt er að geyma og talið verða enn betra með árunum sem líða.

  • Antiéri er eitt af allra nýjustu vínum frá Schola Sarmenti en hefur þegar unnið til nokkurra verðlauna. Vínið er unnið úr Susumaniello-þrúgunni, sem hefur til þessa verið illfáanleg á íslandi.

    Hér er um að ræða kröftugt vín, dökkkirsuberjarautt, með bragð sem einkennist af sultuðum kirsuberjum, plómum og barkarkryddi.

  • Armentino er vín sem auðvelt er að mæla með. Krydd og safarík ber vinna ákaflega vel saman, hvort sem er í nefi eða munni. Dökkrúbínrautt og kröftugt vín, en létt á sama tíma.

    Bragðið einkennist af plómum, brómberjum, vanillu og laufkryddi. Frábært vín eitt og sér, en unir sér einnig vel með kjötmeti og grillmat.

10.990 kr.

Diciotto

Gæðavín úr 85 ára vínvið í glæsilegum viðarkassa.

  • Diciotto-vínið er unnið úr 85 ára gömlum vínvið, þeim elsta á vínekrum Schola Sarmenti, eftir fornum hefðum og aðferðum sem gengið hafa frá kynslóð til kynslóðar í Puglia-héraðinu. Þar af leiðir að ár hvert er vínið aðeins fáanlegt í takmörkuðu upplagi.

    Vínið er úr Primitivo-þrúgunni, einkar þétt og kröftugt, en á sama tíma flauelsmjúkt í munni. Dökkrúbínrautt, með keim af dökkum berjum, eik, kryddi og reyk, súkkulaði og kaffi. Eitt magnaðasta vín sem hefur komið frá Ítalíu, nokkuð sem allir ættu að fá að bragða á lífsleiðinni.

Rautt og hvítt 1

8.990 kr.

Fallegur gjafakassi sem fæst í nokkrum litum.

  • Margverðlaunað meistaraverk Schola Sarmenti. Dökkrúbínrautt, kröftugt og bragðmikið vín, þroskaðir ávextir með keim af súkkulaði og kaffi, ásamt flauelsmjúkri áferð. Tannín eru mild og þægileg, en gera það að verkum að eftirbragð varir lengi.

    Þetta vín er frábært eitt og sér, en unir sér einkar vel með hvers konar kjötmeti. Vín sem hægt er að geyma og talið verða enn betra með árunum sem líða.

  • Ambàce er eitt af nýjustu meistaraverkum Schola Sarmenti, hvítvín sem unnið er úr 15 ára gömlum vínvið. Vínið er létt, þægilegt og meðalþurrt, með keim af ferskjum og villiblómum.

    Hentar mjög vel með ítölskum mat, en unir sér einnig ákaflega vel eitt og sér. Listilega hannaður tappi úr gleri setur loks punktinn yfir i-ið.

Rautt og hvítt 2

7.990 kr.

Fallegur gjafakassi sem fæst í nokkrum litum.

  • Roccamora er unnið úr Negroamaro-þrúgunni. Vínið er létt og þægilegt, en samt sem áður höfugt og bragðmikið.

    Fullkomið jafnvægi er á milli tannína og berjabragðs, en greina má plómu, kirsuber og eikarbragð. Frábært með nær öllum mat, en unir sér einnig mjög vel eitt og sér.

  • Ambàce er eitt af nýjustu meistaraverkum Schola Sarmenti, hvítvín sem unnið er úr 15 ára gömlum vínvið. Vínið er létt, þægilegt og meðalþurrt, með keim af ferskjum og villiblómum.

    Hentar mjög vel með ítölskum mat, en unir sér einnig ákaflega vel eitt og sér. Listilega hannaður tappi úr gleri setur loks punktinn yfir i-ið.

4.990 kr.

Cubardi stök

Þekktasta vín Schola Sarmenti, fallega innpakkað.

  • Margverðlaunað meistaraverk Schola Sarmenti. Dökkrúbínrautt, kröftugt og bragðmikið vín, þroskaðir ávextir með keim af súkkulaði og kaffi, ásamt flauelsmjúkri áferð. Tannín eru mild og þægileg, en gera það að verkum að eftirbragð varir lengi.

    Þetta vín er frábært eitt og sér, en unir sér einkar vel með hvers konar kjötmeti. Vín sem hægt er að geyma og talið verða enn betra með árunum sem líða.

Flöskur að eigin vali

Ertu að leita að annars konar lausn? Hafðu samband hér fyrir neðan og við finnum það sem hentar þér.